Fótbolti

Messi: Ég hef ekki tapað neistanum

Besti knattspyrnumaður heims, Lionel Messi, hefur séð ástæðu til þess að svara ummælum Angel Cappa um að hann væri orðinn leiður á fótbolta.

Cappa er Argentínumaður og var aðstoðarþjálfari hjá Barcelona upp úr 1980. Hann sagði það vera augljóst að neistin og ástríðan fyrir boltanum væri farinn hjá Messi.

"Ég pæli ekki mikið í þessum ummælum og skil ekki af hverju hann segir svona. Ég er að koma til baka eftir meiðsli og vann hart að því að komast í sama form og áður," sagði Messi.

"Ég er ekki búinn að tapa neistanum. Þegar ég var ekki að skora var ég samt ánægður með minn leik. Það tók mig tíma að jafna mig á síðustu meiðslum og ég fór varlega. Mér líður betur með hverjum degi og þannig átti þetta að vera."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×