Tónlist

Gréta Mjöll og tenórinn Gissur áfram

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Gissur Páll Gissurarson flutti lagið Von eftir Jóhann Helgason.
Gissur Páll Gissurarson flutti lagið Von eftir Jóhann Helgason. vísir/vilhelm
Tenórinn Gissur Páll Gissurarson og söngkonan Gréta Mjöll Samúelsdóttir komust áfram á fyrra undankvöldi Söngvakeppninnar 2014 sem var á dagskrá RÚV í kvöld.

Lögin tvö sem komust áfram eru Von, sem Gissur flytur, og lagið Eftir eitt lag í flutningi Grétu.

Höfundur lags og texta Vonar er Jóhann Helgason en það eru þær Ásta Björg Björgvinsdóttir og Bergrún Íris Sævarsdóttir sem eiga lag og texta Eftir eitt lag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.