Tónlist

Shakira og Rihanna gamna sér í nýju myndbandi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Söngkonurnar liggja fáklæddar uppi í rúmi í myndbandinu.
Söngkonurnar liggja fáklæddar uppi í rúmi í myndbandinu.
Nýtt tónlistarmyndband söngkonunnar Shakiru hefur vakið athygli fyrir nokkuð djarfa senu þar sem hún lætur vel að söngkonunni Rihönnu. Lagið ber nafnið Can't Remember to Forget You og flytja söngkonurnar lagið saman.

Æ algengara er orðið að popptónlistarmenn skreyti lög sín með djörfum tónlistarmyndböndum og muna líklega flestir eftir nýlegu myndbandi Miley Cyrus við lagið Wrecking Ball, þar sem söngkonan situr nakin, en þó í stígvélum, á risastórri járnkúlu á milli þess sem hún sleikir sleggju.

Þá þóttu Beyoncé og eiginmaður hennar Jay Z nokkuð djörf í myndbandi lagsins Drunk in Love sem kom út á dögunum, sem og við flutning lagsins á nýafstaðinni Grammy-verðlaunahátíð.

Sjá má myndband þeirra Shakiru og Rihönnu í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.