Tónlist

Britney og Lady Gaga í sömu sæng

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonurnar Britney Spears og Lady Gaga ætla að taka upp dúet saman í nánustu framtíð samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

„Þetta mun gerast bráðlega,“ segir heimildarmaður tímaritsins og bætir við að þær hafi talað um samstarfið baksviðs á tónleikum Britney í Las Vegas í byrjun mánaðarins.

Lafðin skemmti sér konunglega á tónleikunum og birti mynd af sér með Britney á Twitter-síðu sinni nokkrum klukkustundum eftir herlegheitin.

Britney talaði fyrst um áhuga sinn um að vinna með Lady Gaga í desember í fyrra þegar hún spjallaði við aðdáendur sína á netinu.

„Ég væri til í að syngja dúet með Lady Gaga. Ég held að það gæti orðið gaman. Ég fíla hana sem listamann,“ sagði Britney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.