Tónlist

Óskarstilnefning dregin til baka

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Lagið er úr samnefndri kvikmynd sem slegið hefur í gegn hjá kristnum Bandaríkjamönnum.
Lagið er úr samnefndri kvikmynd sem slegið hefur í gegn hjá kristnum Bandaríkjamönnum.
Tilnefning lagsins Alone Yet Not Alone til Óskarsverðlauna hefur verið dregin til baka. Ástæðan er sú að höfundur lagsins, Bruce Broughton, er sagður hafa sent meðlimum tónlistardeildar akademíunnar tölvupósta þar sem hann hvatti þá til að veita laginu sérstaka athygli.

Broughton er fyrrverandi yfirmaður deildarinnar og því þykja póstsendingarnar sérstaklega óviðeigandi Verða tilnefningar í flokki bestu laga því aðeins fjórar.

Í samtali við Hollywood Reporter segist Broughton vera miður sín yfir ákvörðun akademíunnar, honum hafi gengið gott eitt til. „Ég bað fólk einfaldlega að hlusta á lagið og íhuga málið,“ segir hann.

Lagið er úr samnefndri kvikmynd sem slegið hefur í gegn hjá kristnum Bandaríkjamönnum, enda er umfjöllunarefni hennar trúarlegs eðlis. Lagið er flutt af vel þekkti kristinni útvarpskonu, sem stundað hefur trúboð og skrifað fjölda bóka.

Lögin sem eftir standa í flokknum eru:

Happy (Despicable Me 2)

Let It Go (Frozen)

Ordinary Love (Mandela: Long Walk to Freedom)

The Moon Song (Her)

Gríðarlega sjaldgæft er að Óskarstilnefning sé dregin til baka. Það hefur þó gerst áður, en tilnefning kvikmyndarinnar The Godfather í flokki bestu kvikmyndatónlistar var afturkölluð þegar í ljós kom að hluti tónlistarinnar hafði áður verið notaður í annarri kvikmynd.

Hlusta má á lagið Alone Yet Not Alone í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.