Leikjavísir

Gengi hlutabréfa Nintendo hrundi

Haraldur Guðmundsson skrifar
Færri eintök af leikjatölvunni Wii U seldust fyrir jól en Nintendo hafði gert ráð fyrir.
Færri eintök af leikjatölvunni Wii U seldust fyrir jól en Nintendo hafði gert ráð fyrir.
Hlutabréf í japanska tölvuleikjarisanum Nintendo lækkuðu um allt að 18 prósent á mörkuðum Tókýó í morgun. Fyrirtækið sendi frá sér aðkomuviðvörun á föstudag vegna þess að áætlanir gera nú ráð fyrir rekstrartapi upp á 205 milljónir punda, um 39 milljarða króna. Frá þessu er greint á vef BBC.

Aðkomuviðvörunin tengist að stórum hluta lélegri sölu á nýju leikjatölvu Nintendo, Wii U. Fyrirtækið hafði áður gert ráð fyrir að selja um níu milljón tölvur á einu ári en gerir nú einungis ráð fyrir 2,8 milljónum.

Leikjatölvur Microsoft og Sony, Xbox One og Playstation 4, hafa á sama tíma selst mjög vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×