Tónlist

Textinn vísar í gróft heimilisofbeldi.

Beyonce fékk eiginmann sinn Jay Z til að vinna með sér í laginu Drunk in Love, sem er að finna á fimmtu breiðskífu söngkonunnar, sem einnig heitir Beyonce.

Lagið hefur átt góðu gengi að fagna, og klifrað hátt á vinsældalista, en ekki eru allir jafn ánægðir með framlag eiginmannsins.

Bang Radio, útvarpsstöð í Bretlandi, tilkynnti í vikunni að þau myndu bara spila klippta útgáfu af laginu. Framkvæmdastýra fyrirtækisins, Jennifer Ogole, útskýrði að lína í texta sem Jay Z fer með hafi verið klippt út, þar sem henni finnst hún móðgandi.

Í textanum segir: „Now eat the cake, Anna Mae / I said eat the cake, Anna Mae,“ sem vísar í línu úr kvikmyndinni What's Love Got to Do with It, þar sem Angela Bassett leikur söngkonuna Tinu Turner, sem er beitt ofbeldi af hendi unnusta síns, Ike Turner.

Raunverulegt nafn Tinu Turner er Anna Mae Bullock, og í myndinni er hún á ofbeldisfullan máta neydd til þess að borða af kærasta sínum.

„Textinn vísar í senu í kvikmynd sem sýnir gróft heimilisofbeldi. Við áskiljum okkur réttinn til að ýta ekki undir heimilisofbeldi gegn konum og ætlum því ekki að spila textann í heild sinni á Bang Radio,“ segir meðal annars í tilkynningu frá Ogole.

Hér að neðan má heyra lagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.