Tónlist

The Wanted tekur sér pásu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hljómsveitin The Wanted, sem samanstendur af þeim Tom Parker, Max George, Jay McGuiness, Siva Kaneswaran og Nathan Sykes, tilkynntu á heimasíðu sinni fyrir stuttu að sveitin ætlaði að taka sér pásu eftir að tónleikaferðalagi þeirra lýkur í lok apríl.

„Þetta tónleikaferðalag verður það síðasta í bili þar sem Tom, Max, Jay, Siva og Nathan hafa ákveðið í sameiningu að taka sér frí. Hljómsveitin vill undirstrika að hún haldi áfram sem The Wanted og hlakkar strákana til að takast á við fleiri verkefni í framtíðinni,“ segir í tilkynningu sveitarinnar.

The Wanted var mynduð árið 2009 og hefur sveitin gefið út þrjár plötur - The Wanted árið 2010, Battleground árið 2011 og Word of Mouth í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.