Tónlist

Sting og Paul Simon tjá sig saman

Sting og Paul Simon saman á tónleikum og í viðtali saman.
Sting og Paul Simon saman á tónleikum og í viðtali saman. Mynd/Skjáskot
Í næsta mánuði skunda tvær stórstjörnur saman af stað í tónleikaferðalag, þeir Sting og Paul Simon. Þetta er í fyrsta sinn á þeirra ferli sem þeir koma fram saman. Á tónleikum þeirra ætla þeir að skiptast á að koma fram og að öllum líkindum taka þeir lagið saman.

Í myndbandinu hér að neðan má sjá goðsagnirnar tvær, spjalla saman um daginn og veginn. Þar fara þeir yfir ferilinn og segja jafnframt frá því við hverju megi búast á tónleikum þeirra.

Tónleikaferðlagið sem kallast On Stage Together hefst þann 8. febrúar í Toyota Center höllinni í Houston.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.