Tónlist

Endurfundir Bítlanna

Fyrrum Bítlarnir, Paul McCartney og Ringo Starr, komu fram á Grammy-verðlaunahátíðinni í nótt og sungu saman nýjast lag McCartney, Queenie Eye, við gríðarlegan fögnuð viðstaddra. 

Sögusagnir höfðu verið um að eftirlifandi meðlimir hljómsveitarinnar goðsagnakenndu myndu koma fram á verðlaunahátíðinni, sem haldin var í nótt í 56. sinn, en þó hafði ekkert verið staðfest í þeim efnum. Það vakti því gríðarlega lukku þegar Starr og McCartney fluttu lagið.

Fyrr um kvöldið hafði Ringo Starr komið fram einn og sungið lagið Photograph.

Sjón er sögu ríkari.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.