Tónlist

Í eldhafi á sviðinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Katy Perry flutti lagið Dark Horse á Grammy-verðlaunahátíðinni í Los Angeles í nótt.

Atriðið var afar metnaðarfullt og klæddi Katy sig upp sem dularfull norn.

Reykvélarnar fengu að vinna fyrir kaupinu sínu í atriðinu og minnti sviðið á ógnvænlegan skóg. Þá endaði Katy atriðið í eldhring á sviðinu.

Dark Horse er af fjórðu stúdíóplötu Katy, Prism. Söngkonan var tilnefnd til tveggja Grammy-verðlauna í ár en hlaut enga styttu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.