Tónlist

Madonna og Miley syngja dúett

Madonna og Miley við upptökur á þættinum
Madonna og Miley við upptökur á þættinum AFP/NordicPhotos
Poppstjörnurnar Miley Cyrus og Madonna koma til með að sameina krafta sína í nýjasta þætti MTV Unplugged, sem sýndur verður í kvöld.

Miley Cyrus verður aðalnúmer þáttarins, en síðan kemur Madonna á svið og klárar þáttinn með hinni tuttugu og eins árs gömlu söngkonu.

Líklegt þykir að Miley taki lög af nýju plötu sinni, Bangerz, en óvissa ríkir um hvaða lag eða lög Madonna og Miley koma til með að syngja saman.

Það verður spennandi að fylgjast með þættinum í kvöld, sem verður sýndur á MTV.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.