Tónlist

Motley Crue kveðja með stæl

Af blaðamannafundi Motley Crue í gær.
Af blaðamannafundi Motley Crue í gær. AFP/Nordic Photos
Mötley Crue eru hættir.

Þungarokksbandið ætlar þó að kveðja með stæl, en þeir ætla að halda 72 tónleika áður en þeir setjast í helgan stein.

Meðlimir hljómsveitarinnar greindu frá þessu á blaðamannafundi í gær.

Mötley Crue lofuðu meðal annars á blaðamannafundinum að koma aldrei saman aftur eftir að þeir hætta, og skrifuðu undir samning þess efnis.

„Allir vondir hlutir þurfa að enda einhverntíma,“ stendur á plaggatinu fyrir tónleikaferðalagið sem þeir eiga fyrir höndum.

„Við sáum alltaf fyrir okkur að kveðja með stæl, en spila ekki á einhverjum uppskeruhátíðum með einn eða tvo upprunalega meðlimi í sveitinni,“ sagði trommarinn Tommy Lee í tilkynningu sinni á blaðamannafundinum. „Okkar verki er lokið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.