Sport

Kostar níu þúsund krónur að fylgjast með Anítu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aníta fagnar sigri á HM 17 ára og yngri í Úkraínu í fyrra.
Aníta fagnar sigri á HM 17 ára og yngri í Úkraínu í fyrra. Nordicphotos/Getty
Þrjár af fljótustu ungu hlaupakonum heimsins leiða saman hesta sína á Millrose-leikunum í New York þann 15. febrúar. Aníta Hinriksdóttir er ein hinna þriggja en miðasala á mótið stendur yfir.

Millrose-leikarnir eru eitt stærsta innanhússmótið sem haldið er vestanhafs ár hvert. Mótshaldarar lögðu mikið upp úr því að fá efnilegustu hlaupakonur heimsins til að leiða saman hesta sína í 800 metra hlaupinu. Það gekk eftir og fyrir vikið er greinin ein af aðalgreinum dagsins.

Aníta Hinriksdóttir úr ÍR, heimsmeistari 17 ára og yngri og Evrópumeistari 19 ára og yngri í 800 metrunum, mætir vonarstjörnum Bandaríkjanna, Mary Cane og Ajee Wilson.

Hin bandaríska Cane verður á heimavelli í New York en hlaupamærin á best 1:59,51 mínútur í 800 metrunum utanhúss. Cane er jafngömul Anítu en keppti þó ekki á HM 19 ára og yngri í Úkraínu síðastliðið sumar. Hún kaus að keppa á HM fullorðinna í Moskvu þar sem hún komst í úrslit og hafnaði í 10. sæti í 1500 metra hlaupi.

Wilson er tveimur árum eldri en þær Aníta og Cane. Hún var heimsmeistari í 800 metra hlaupi 19 ára og yngri árið 2012. Segja má að Wilson sé einnig á heimavelli enda uppalin í New Jersey, handan árinnar. Wilson á best 1:58,21 mínútur í greininni frá því í fyrra.

Mary Cain.Nordicphotos/Getty
Þá verður Natoya Goule, 22 ára hlaupakona frá Jamaíka, einnig á meðal keppenda. Goule rauf tveggja mínútna múrinn í Kingston síðastliðið sumar er hún kom í mark á tímanum 1:59,93 mínútur.

Allir ofantaldir tímar eru úr hlaupum utanhúss. Íslandsmet Anítu utanhúss er 2:00,49 mínútur en met hennar innanhúss er 2:03,27 mínútur.

Miðasala á Millrose leikana stendur yfir á heimasíðu þeirra, sjá hér. Keppni hefst klukkan 12 á hádegi og stendur til 18:30. Keppni í helstu greinum, þar á meðal 800 metra hlaupinu, fer fram einhvers staðar á milli klukkan 15 og 17.

Ódýrustu miðarnir kosta 80 dali eða rúmlega 9.200 krónur. Þá er einnig hægt að bæta við tólf þúsund krónum til að fá sæti á besta stað en í þeim pakka fylgja ókeypis veitingar. 

Nánari upplýsingar um mótið má fá á heimasíðu þess þar sem ítarlega er fjallað um 800 metra hlaupið, sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×