Tónlist

Hlustaðu á nýjasta lag Leu Michele

Lea Michele
Lea Michele vísir/AFP
Lea Michele hefur verið iðin við kolann undanfarið, en nú fer að styttast í að hún gefi út plötu sína sem hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og heitir Louder.

Lögin Cannonball og Battlefield hefur hún þegar gefið út, en þau verður bæði að finna á plötunni.

Michele er 27 ára gömul og platan er sú fyrsta frá henni komin.

Á plötunni verður einnig að finna lag sem hún samdi um Cory Monteith, kærasta sinn, en hann lést úr of stórum skammti eiturlyfja á hótelherbergi í Kanada fyrr á árinu. Lagið heitir You're Mine.

Nýjasta lagið ber sama heiti og platan sjálf, Louder. Meðhöfundur er Colin Munroe, sem hefur áður unnið með tónlistarmönnum á borð við Drake og Kendrick Lamar, Jaden Michaels og Anne Preven.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.