Tónlist

Nýtt myndband frá Snorra Helgasyni

Hljómsveitin Snorri Helgason sendir frá sér nýtt myndband.
Hljómsveitin Snorri Helgason sendir frá sér nýtt myndband. Mynd/Einkasafn
Nýtt tónlistarmyndband við lagi Snorra Helgasonar, Summer is almost gone af plötunni Autumn Skies er komið út og var frumsýnt á heimasíðu útvarpsstöðvarinnar KEXP í Seattle.

Myndbandið var tekið upp í New York síðasta sumar undir leikstjórn Rebekku Bryndísar Björnsdóttur og Yoonha Park.

Hljómsveitin Snorri Helgason er skipuð, ásamt Snorra, þeim Guðmundi Óskari Guðmundssyni bassaleikara, Daníel Friðriki Böðvarssyni gítarleikara, Magnúsi Trygavasyni Eliassen trommuleikara og Sigurlaugu Gísladóttur.

Þessi hópur hafði verið að spila tónlist Snorra á tónleikum í um tvö ár áður en hann ákvað að taka skrefið til fulls og stofna hljómsveit um það leyti sem vinnan við upptökur á Autumn Skies hófust, haustið 2012.

Hljómsveitin kemur fram á tónleikum annað kvöld, í menningarhúsinu Mengi sem stendur við Óðinsgötu 2 og hefjast klukkan 21.00. Aðgangseyrir 2.000 krónur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.