Tónlist

Christine McVie aftur í Fleetwood Mac

1987: Christine McVie og Stevie Nicks
1987: Christine McVie og Stevie Nicks AFP/NordicPhotos
Mick Fleetwood tilkynnti á tónleikum þann 11. janúar síðastliðinn í Maui í Havaí, aðdáendum Fleetwood Mac til mikillar gleði, að Christine McVie myndi ganga aftur til liðs við sveitina.

McVie gekkst upprunalega til liðs við sveitina árið 1970, þegar hún gifti sig John McVie, öðrum meðlimi sveitarinnar. 

Hún skipaði sér fljótlega sess sem aðallagahöfundur sveitarinnar og samdi nokkur af þeirra þekktustu lögum, á borð við Little Lies og Don't Stop. 

McVie hætti í hljómsveitinni árið 1998.

Hér að neðan má sjá sveitina flytja lagið You make loving fun eftir McVie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.