Lífið

Dramatísk greiðsla á dreglinum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Natalie Dormer frumsýndi ansi djarfa hárgreiðslu á Screen Actors Guild-verðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles í gær.

Natalie, sem leikur Margaery Tyrell í sjónvarpsseríunni Game of Thrones, klæddist fallegum kjól frá Marios Schwab en allra augu voru á hári leikkonunnar en hún er búin að raka af sér hárið öðru meginn á höfðinu.

Líklegt er að hárgreiðslan sé tilkomin vegna hlutverks hennar sem Cressidu í The Hunger Games: Mockingjay.

Talsverð breyting.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×