Harmageddon

Myndband frá einum síðustu tónleikum Nirvana

Orri Freyr Rúnarsson skrifar
Nirvana verður vígð inn í Frægðarhöll rokksins 10. apríl.
Nirvana verður vígð inn í Frægðarhöll rokksins 10. apríl. nordicphotos/getty
Áður óséð myndband af síðustu tónleikum Nirvana í Los Angeles hefur nú verið gert opinbert. Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan.

Kvikmyndagerðarmaðurinn Dave Markey setti myndbandið á YouTube 30. desember síðastliðinn. Markey var ágætis vinur hljómsveitarmeðlima og ferðaðist mikið með Nirvana og á því til mikið af ómetanlegu efni með hljómsveitinni. Myndbandið sem hefur verið gert aðgengilegt inniheldur upptökur sem Markey tók upp á tónleikum Nirvana í Great Western Forum í Los Angeles þann 30. desember árið 1993 og reyndust þetta vera síðustu tónleikar hljómsveitarinnar í borginni.

Aðeins öfáum mánuðum eftir að myndbandið var tekið fyrirfór Kurt Cobain sér og þar með var ferli hljómsveitarinnar lokið.

Í lok síðasta árs var einnig tilkynnt að bærinn Hoquiam í Washington fylki hefur ákveðið að 10.apríl 2014 verði Nirvana dagur í bænum en Kurt Cobain bjó um þar um tíma. En það verður einmitt þann 10.apríl næstkomandi sem Nirvana verður tekinn inn í Frægðarhöll rokksins.  








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.