Tónlist

Fjölskyldan með 70 manna gospelkór bak við sig

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Regína Ósk Óskarsdóttir kemur fram ásamt fjölskyldu sinni í kvöld.
Regína Ósk Óskarsdóttir kemur fram ásamt fjölskyldu sinni í kvöld. fréttablaðið/vilhelm
„Við fjölskyldan syngjum öll saman og verðum með sjötíu manna kór á bak við okkur,“ segir tónlistarkonan Regína Ósk Óskarsdóttir sem stendur fyrir jólatónleikum í kvöld í Lindakirkju. Þetta er í fimmta skiptið sem tónleikarnir fara fram í hverfiskirkju fjölskyldunnar og hafa þeir stækkað að umfangi frá ári til árs.

„Ég var nýbúin að eignast barn árið 2009 og langaði til að gera eitthvað jólalegt, þannig að þetta byrjaði sem hálfgert fjölskylduverkefni,“ segir Regína Ósk. Eiginmaður hennar, Svenni Þór, leikur á gítar, slagverk og syngur á tónleikunum og þá munu dæturnar tvær Aníta Daðadóttir ellefu ára og Aldís María Sigursveinsdóttir fjögurra ára syngja.

Ásamt fjölskyldunni koma fram bæði gospelkór og unglingagospel kór Lindakirkju undir leiðsögn Óskars Einarssonar. Kristján Grétarsson leikur á gítar og þá mun stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason koma fram sem sérstakur heiðursgestur.

„Ég gaf út jólaplötuna Um gleðileg jól og við flytjum lög af henni, ásamt því að syngja jólalög úr öllum áttum sem flestir ættu að kannast við.“

Miðasala á tónleikana fer fram á midi.is en einnig er hægt að fá aðgöngumiða við innganginn. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.