Tónlist

Jólakveðja í Fríkirkjunni

Sigríður Thorlacius leikur ásamt hljómsveit sinni á útgáfutónleikum í Fríkirkjunni í kvöld.
Sigríður Thorlacius leikur ásamt hljómsveit sinni á útgáfutónleikum í Fríkirkjunni í kvöld. fréttablaðið/valli
Sigríður Thorlacius mun ásamt hljómsveit sinni leika á útgáfutónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík á miðvikudagskvöldið.

Platan sem ber titilinn Jólakveðja, inniheldur frumsamin lög en textarnir eru sóttir í klassísk íslensk ljóðasöfn. Textarnir spanna nokkuð langt tímabil, þeir elstu eiga rætur sínar að rekja til aldamótanna 1900 en þeir yngstu ná allt til árþúsundamótanna 2000.

Sigríður Thorlacius hefur á stuttum ferli skipað sér á sess með fremstu söngkonum þjóðarinnar. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 20.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.