Tónlist

Vilja gera nýjum hljómsveitum auðveldara fyrir

Eflum íslenskt tónlistarlíf verður haldin á Hressingarskálanum á fimmtudaginn. Kristján Haraldsson er einn skipuleggjenda.
Eflum íslenskt tónlistarlíf verður haldin á Hressingarskálanum á fimmtudaginn. Kristján Haraldsson er einn skipuleggjenda. MYND/Úr einkasafni
„Við höldum þessa keppni bara af hugsjón,“ segir Kristján Haraldsson, hjá Stúdíó Hljómi, en hann stendur fyrir keppninni Eflum íslenskt tónlistarlíf á fimmtudag klukkan 22.30 á Hressingarskálanum.

„Þegar ég var að byrja í músík vissi ég ekkert hvert ég átti að snúa mér – þá voru bara stóru hljóðverin starfrækt og hinn kosturinn var að taka eitthvað upp í bílskúr hjá vini sínum, ef maður var svo heppinn,“ segir Kristján og hlær.

Nú, þegar Kristján og félagar hafa aðstöðu til, vilja þeir gera nýjum hljómsveitum auðveldara fyrir.

„Við viljum gefa þeim færi á að hafa gæði í upptökum og komast að í hljóðveri,“ útskýrir Kristján, en hann hefur starfrækt Stúdíó Hljóm frá árinu 2010.

Eflum íslenskt tónlistarlíf hefur gjarnan verið kölluð Míní-Músíktilraunir.

„Það sem mér finnst skemmtilegt við þessa keppni er að áhorfendur velja hljómsveitina sem sigrar. Lýðræðislegar kosningar skera úr um hver vinnur,“ segir Kristján léttur í bragði.

„Þegar fólk fer og kaupir sér drykk, hvort sem það er kaffi, kók eða bjór, þá fær það líka kosningamiða til að fylla út,“ segir hann.

Að þessu sinni taka fjórar hljómsveitir þátt, en þær eru Texas Muffin, HEK, Þausk og Postulín.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.