Tónlist

Uppselt á sjö mínútum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Stefán Hilmarsson
Stefán Hilmarsson
„Miðasala hófst á föstudaginn klukkan 12.00 og klukkan 12.07 var orðið uppselt,“ segir Stefán Hilmarsson tónlistarmaður, sem býður upp á jólatónleika í Salnum í Kópavogi föstudagskvöldið 20. desember.

„Ásókn var satt að segja miklu meiri en gert var ráð fyrir og því ákváðum við sem snöggvast að bæta við einum aukatónleikum daginn eftir,“ bætir Stefán við, en aðeins eru örfáir miðar eftir á aukatónleikana.

Á tónleikunum verða flutt lög af jólaplötu Stefáns sem ber titilinn Ein handa þér, sem kom út fyrir fimm árum, í bland við sérvalin stemmnings- og hátíðarlög. Auk þess munu þar hljóma eitt til tvö lög af nýrri jólaplötu sem Stefán hefur haft í hægum smíðum undanfarin misseri. Mörg þessara laga hefur hann ekki sungið opinberlega fyrr, því þegar Ein handa þér kom út á sínum tíma gafst ekki tími til tónleikahalds sökum anna á öðrum vígstöðvum.

„Þetta eru fyrstu svona formlegu jólatónleikarnir sem ég held,“ segir Stefán en honum til fulltingis verða valinkunnir spilarar auk þess sem nokkrir leynigestir láta sjá sig á tónleikunum.

Framundan eru einnig Viðhafnartónleikar Sálarinnar sem fram fara í Hörpu næsta laugardagskvöld. Seldist upp á tónleikana á fyrsta degi og var því aukatónleikum bætt við.

Miðasala á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.