Tónlist

Hverflynd músa Del Rey

Lana Del Rey segist lítið vita um næstu breiðskífu sína.
Lana Del Rey segist lítið vita um næstu breiðskífu sína. Nordicphotos/getty
Söngkonan Lana Del Rey er óviss um hvers konar tónlist næsta breiðskífa hennar mun innihalda. Þetta kemur fram í nýju viðtali sem Del Rey veitti tímaritinu Nylon.

„Þegar fólk spyr mig út í næstu plötu gef ég því hreinskilið svar og segist einfaldlega ekki vita hvernig tónlist hún mun innihalda. Ég vil ekki segja: Já, næsta plata verður betri en sú síðasta,“ því ég veit ekki hvernig hún mun koma til með að hljóma. Músan mín er mjög hverflynd og kemur bara stundum til mín. Sem getur verið pirrandi,“ útskýrði söngkonan sem sló í gegn með laginu Video Games árið 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.