Tónlist

Tekur aðeins upp á fullu tungli

Freyr Bjarnason skrifar
Steinunn Harðardóttir hefur stofnað útgáfufyrirtækið Eldflaug records.
Steinunn Harðardóttir hefur stofnað útgáfufyrirtækið Eldflaug records. fréttablaðið/valli
Steinunn Harðardóttir hefur stofnað útgáfufyrirtækið Eldflaug records. Það gefur einungis út tónlist til heiðurs geimferðum.

„Mér finnst gaman að hafa aðrar áherslur en hjá stóru útgáfunum. Mér fyndist gaman ef fólk færi að búa til tónlist til að falla inn í þessa „kategoríu“ og það kæmi út fullt af geimtónlist á Íslandi,“ segir Steinunn, sem hvetur tónlistarfólk til að senda til sín geimtónlist. Hún er sjálf undir áhrifum frá Joe Meek sem gaf út geimtónlist á sjötta og sjöunda áratugnum.

Fyrsta plata útgáfunnar nefnist Glamúr í geimnum og er sú fimmta frá hljómsveit Steinunnar, dj. flugvél og geimskip. Hún kemur út í tilefni af komu halastjörnunnar ISON. Myndband við titillag plötunnar er komið út. Það gerist í geimfari og var í tvo mánuði í framleiðslu.

Sveitin dj. flugvél og geimskip tekur bara upp tónlist á fullu tungli og það tók því tvö ár að ljúka við plötuna.

Útgáfutónleikar verða á laugardagskvöld klukkan 21 á Kexi hosteli, daginn eftir fullt tungl. Fyrst verður sýnd furðuleg kvikmynd og boðið upp á sykurull. Eftir það hitar Arnljótur Sigurðsson úr Ojba Rasta upp með óvenjulegri tónlist og að lokum spilar dj. flugvél og geimskip.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.