Tónlist

Leynigestir á svið með Emmsjé Gauta

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Emmsjé Gauti kemur fram á tvennum tónleikum í kvöld ásamt Úlfi Úlfi og Agent Fresco.
Emmsjé Gauti kemur fram á tvennum tónleikum í kvöld ásamt Úlfi Úlfi og Agent Fresco. fréttablaðið/anton brink
Aukatónleikar með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi fara fram í Hörpu í kvöld. Tónleikarnir hefjast strax að fyrri tónleikunum loknum, klukkan 22.

„Hvorir tveggja tónleikarnir verða geggjaðir og við hlökkum mikið til,“ segir Emmsjé Gauti sem tekur gamalt efni í bland við nýtt efni sem kemur út á væntanlegri plötu sem heitir Þeyr.

Strákarnir í Úlfi Úlfi ætla einnig að leika nokkur ný lög af plötu sem þeir eru að vinna í, í bland við eldra efni.

Hljómsveitin Agent Fresco kemur fram með Emmsjé Gauta og Úlfi Úlfi og verða flest lögin útsett á nýjan hátt.

„Við verðum einnig með leynigesti á tónleikunum, þeir eru bræður og meðal fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar, ég segi ekki meira,“ segir Gauti að lokum.

Miðasala fer fram á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.