Tónlist

Beyoncé vill barnvænt búningsherbergi

Beyoncé vill að búningsherbergi sitt sé hvítt og barnvænt.
Beyoncé vill að búningsherbergi sitt sé hvítt og barnvænt. Nordicphotos/getty
Bandaríska söngkonan Beyoncé fer fram á að tvö hvít handklæði, tvö stykki af Irish Spring sápustykkjum og hvít húsgögn séu í búningsherbergi hennar á tónleikaferðalögum. Tímaritið In Touch birti hluta af kröfulista söngkonunnar, en slíkur listi kallast rider á enskri tungu.

Á kröfulistanum er farið fram á að búningsherbergin séu í anda setustofu og að hitinn þar inni sé passlegar 22 gráður. Búningsherbergin eiga einnig að vera barnvæn, þar eiga hvorki að vera hvöss horn eða vírar, og maturinn á að vera borinn fram á dúkuðu borði.

Skiptar skoðanir eru á því hvort kröfulisti Beyoncé sé óhóflegur eður ei, en hún tekur dóttur sína, Blue Ivy, með á tónleikaferðalög sín og því eðlilegt að söngkonan reyni að búa þannig um hnútana að barninu líði sem best.

Kröfulisti Beyoncé:

Ilmkerti sem ilma af vínberjum.

Hvít húsgöng, þar á meðal sófi, legubekkur og gardínur.

Spegill í fullri lengd.

Tvö gólfteppi.

Tvö hvít handklæði.

Sápuskammtari.

Tvö Irish Spring sápustykki.

Borðstofuborð sem er 250 sentimetrar að lengd.

Þrjár litlar ruslatunnur.

Matvinnsluvél svo hægt sé að búa til ávaxtadrykki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.