Tónlist

Fleiri orð og meira majónes

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin Ojba Rasta gefur út sína aðra plötu í dag.
Hljómsveitin Ojba Rasta gefur út sína aðra plötu í dag. fréttablaðið/valli
Önnur plata reggíhljómsveitarinnar Ojba Rasta, Friður, kemur út í dag. Hún fylgir eftir plötu sveitarinnar, Ojba Rasta, sem vakti mikla athygli í fyrra.

Arnljótur Sigurðsson og Teitur Magnússon eru aðallagahöfundar þessarar níu manna sveitar. Arnljótur segir nýju plötuna öðruvísi en þá síðustu. „Hún er lengri, með fleiri lögum, fleiri orðum og meira majónesi,“ segir hann. „Núna er meira farið um víðan völl og platan er kannski beittari en sú síðasta.“

Spurður út í nafnið Friður segir Arnljótur alls konar frið vera að finna á plötunni. „Það er bæði friður í hjartanu og svo er verið að ræða um utanáliggjandi frið. Það má túlka þetta á ýmsa vegu. Það er líka merkilegt að enginn hafi gefið út plötu sem heitir Friður áður.“

Þrátt fyrir að stuttur tími sé liðinn frá því að Ojba Rasta kom út segir Arnljótur hljómsveitina ekkert afkastameiri en gengur og gerist. „Við erum búin að vera starfandi í um það bil þrjú ár og þetta eru orðin ein átján lög sem við höfum gefið út. Það er ekki mikið á þremur árum.“

Sveitin spilar næst á Airwaves-hátíðinni. Útgáfutónleikar verða haldnir í nóvember eftir að Friður kemur út á vínyl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.