Tónlist

Swift heillast af vandræðapésum

Vill breytast Taylor Swift heillast af vandræðapésum en vill breyta því.
Vill breytast Taylor Swift heillast af vandræðapésum en vill breyta því. Nordicphotos/getty
Söngkonan Taylor Swift segist helst hrífast af dularfullum strákum sem búa yfir leyndarmáli. Þetta segir hún í viðtali við tímaritið In Style.

„Vinir mínir stríða mér vegna þess að ef strákur virðist vera vandræðapési eða eiga sér leyndarmál finnst mér hann undantekningarlaust mjög heillandi. Þetta er tímabil sem ég er að ganga í gegnum," sagði hún.

"Ég held að ég muni ekki halda áfram á þessari braut. Það er mikilvægt að vera meðvitaður um þessa hluti því ég vil ekki enda með þannig strák,“ sagði hún í viðtali við tímaritið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.