Tónlist

Hljómar og John Grant á svið

Freyr Bjarnason skrifar
Tónlistarmaðurinn John Grant kemur fram á afmælisfundi SÁÁ.
Tónlistarmaðurinn John Grant kemur fram á afmælisfundi SÁÁ. fréttablaðið/valli
Hljómar og John Grant eru á meðal þeirra sem koma fram á afmælisfundi SÁÁ í Háskólabíói í kvöld.

Á meðal annarra sem koma fram eru Lockerbie, Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar og Karlakórinn Fóstbræður. Sérstakur gestur verður Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.

„Þarna erum við að stilla saman strengina og brýna okkur öll í baráttunni sem er fram undan,“ segir leikarinn Rúnar Freyr Gíslason, starfsmaður SÁÁ.

Fjársöfnunin Áfram Vogur er nýhafin þar sem óskað er eftir aðstoð frá fyrirtækjum og einstaklingum. Einstaklingar geta hringt í síma 903-2001, 903-1003 og 903-1005 og borgað eitt til fimm þúsund krónur.

„Okkur finnst við standa á tímamótum því Þórarinn Tyrfingsson [yfirlæknir á Vogi] segist aldrei hafa séð svartara ástand. Við erum að byggja upp aðstöðu fyrir veikasta fólkið og eins og staðan er núna þurfum við aðstoð til að geta þetta. Annars er nánast óumflýjanlegt að skerða þjónustuna,“ segir Rúnar Freyr. „Þess vegna viljum við hittast og fylla Háskólabíó.“

Tónleikarnir eru ókeypis og hefjast klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.