Tónlist

Frostrósirnar kveðja á toppnum

Freyr Bjarnason skrifar
„Ef það á að kveðja er best að gera það á toppnum,“ segir Samúel Kristjánsson, skipuleggjandi Frostrósatónleikanna.

Lokatónleikar hinna vinsælu Frostrósa verða haldnir í Laugardalshöll 21. desember. Eftir það fara þær í frí um óákveðinn tíma. Samúel ætlar í staðinn að einbeita sér að því að koma Frostrósunum á kortið í Noregi og Svíþjóð.

„Ég er búinn að vinna með Frostrósir í Noregi og Svíþjóð síðustu tvö ár. Það hefur verið svo rosalega mikil vinna hérna heima að það er ekki hægt að gera bæði,“ segir Samúel, sem er einnig búinn að ráða sig í annað verkefni í Svíþjóð.

„En það er aldrei að vita nema hugurinn leiti aftur heim og við, þessi samhenta fjölskylda sem að baki þessu stendur, komum saman aftur og blásum til veislu að nokkrum árum liðnum. En það þarf framtíðin að leiða í ljós.“

Á lokatónleikunum í Höllinni verður öllu tjaldað til. Dívurnar mæta allar til leiks, auk fjölda tenóra og söngvara. Einnig kemur fram Stórhljómsveit Frostrósa, tvö hundruð manna hátíðarkór, barnakór og Íslenski gospelkórinn. Miðasala hefst 15. október á Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.