Gagnrýni

Endurtekið efni

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Kvikmynd Róberts I. Douglas er áferðarfalleg en húmorinn of ýkur.
Kvikmynd Róberts I. Douglas er áferðarfalleg en húmorinn of ýkur.
Bíó: Svona er Sanlitun / This is Sanlitun

Leikstjóri: Róbert I. Douglas Leikarar: Carlos Ottery, Christopher Loton, Ai Wan

RIFF-hátíðin



Gary er enskur undirmálsmaður sem flyst búferlum til Kína til að vera nálægt fyrrverandi eiginkonu sinni og syni. Frank er hrokafullur lygalaupur sem hefur búið þar lengi og tekur Gary undir sinn verndarvæng. Barnsmóðirin á erfitt með að treysta Gary, vill sem minnst af honum vita og fundir feðganna enda flestir með ósköpum.

Svona er Sanlitun er fjórða mynd leikstjórans Róberts Douglas en hans fyrsta, Íslenski draumurinn frá árinu 2000, er líklega mín uppáhalds íslenska kvikmynd. Hér er bakað eftir sömu uppskrift en eitthvað hefur klúðrast í ofninum.

Aðalleikarinn er ágætur og myndin er nokkuð áferðarfalleg, en á köflum leiddist mér hreinlega. Vandamálið tel ég að liggi í handritinu. Húmorinn er of ýktur og hið lágstemmda ekki nógu áhugavert. Í Íslenska draumnum var vandræðagangurinn drepfyndinn og hádramatískur á víxl. Hér er hann hvorki né.

Niðurstaða: Douglas hefur gert þetta áður og mun betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×