Matur

Morgunverðarjógúrt með ristuðum hnetum og ávöxtum

Marín Manda skrifar
Kári Gunnarsson
Kári Gunnarsson

Kári Gunnarsson er grafískur teiknari sem hefur mikinn áhuga á bragðgóðum og heimatilbúnum mat. Hér deilir hann uppskrift að morgunverðarjógúrti með ristuðum hnetum og ávöxtum en einn skammtur inniheldur u.þ.b. 15 grömm af kolvetnum.

Ristaðar hnetur

2 msk. valhnetur (saxaðar)

2 msk. möndlur (saxaðar)

2 msk. kókosflögur

1 msk. smjör



Bræðið smjörið á heitri pönnu og ristið hneturnar og kókosflögurnar í smástund. Sett í skál og látið kólna.



Jógúrtblandan

2 msk. hreint skyr

2 msk. grískt jógúrt 

4 msk. kókosolía (fljótandi)

2 msk. Torani-raspberry síróp

Allt pískað vel saman í skál.

Ávextir

6 jarðarber

1 lárpera

Skorið í litla bita. 

Samsetning

Jógúrtblandan er sett í tvær skálar. Berin, avókadó og hnetublandan sett ofan á. 2 msk. af rjóma og Torani-síróp efst.

Dýrindis morgunverður í einni skál.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.