Tónlist

Ósungin lög á sólóplötu

Nýjasta sólóplata Halls heitir Öræfi.
Nýjasta sólóplata Halls heitir Öræfi. fréttablaðið/gva
Hallur Ingólfsson hefur gefið út sólóplötuna Öræfi. Hún inniheldur níu ósungin lög eftir Hall.

„Útsetningar laganna hugsaði ég sem eins konar lífshlaup. Laglína fer af stað og breytist allan tímann. Verður fyrir áföllum og upphefst til skiptis í samspili hljóðfæranna þar til lagið líður undir lok. Eins konar ör-æfi“,“ segir Hallur um plötuna.

Sum laganna eiga upptök sín að rekja til þeirrar tónlistar sem Hallur hefur samið fyrir leikhús og kvikmyndir undanfarin ár. Hann gaf síðast út sólóplötuna Disaster Songs árið 2009. Hann hefur einnig gefið út plötur með rokksveitunum XIII og Skepna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.