Tónlist

Trommuhátíð haldin í fimmta sinn

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Halldór Lárusson lofar mikilli gleði á hinni árlegu hátíð Trommaranum.
Halldór Lárusson lofar mikilli gleði á hinni árlegu hátíð Trommaranum. Mynd/úr einkasafni
„Við eigum fimm ára afmæli í ár,“ segir trommuleikarinn Halldór Lárusson um viðburðinn Trommarinn 2013, sem haldinn verður í Tónlistarskóla FÍH þann 12. október næstkomandi. Trommarinn er hátíð þar sem trommuleikarar og -áhugamenn koma saman og skemmta sér.

Fjöldri þekktra trommuleikara koma fram á Trommaranum í ár, þeirra á meðal er goðsögnin Sigurður Karlsson, sem mun meðal annars flytja lög hljómsveitarinnar Genesis.

Halldór skipulagði fyrsta Trommarann árið 2009 og hefur viðburðurinn verið haldinn árlega síðan þá. „Það veit aldrei neinn hver trommarinn er í bandinu, þannig að við erum með sér hátíð, enda eru trommarar að jafnaði skemmtilegustu meðlimir hljómsveitarinnar,“ segir Halldór í gamansömum tón.

„Hátíðin hefur stækkað töluvert á milli ára og er farin að vekja athygli utan landsteinanna, enda eigum við mjög mikið af frábærum trommurum,“ bætir hann við.

Aðgangur er ókeypis inn á hátíðina en hún stendur frá klukkan 13 til 18. Nánari upplýsingar má finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.