Tónlist

Smíðar Flying V fyrir Rokkjötna

Freyr Bjarnason skrifar
Gunnar Örn Sigurðsson er að smíða svokallaðan Flying V-gítar sem verður boðinn upp á Rokkjötnum.
Gunnar Örn Sigurðsson er að smíða svokallaðan Flying V-gítar sem verður boðinn upp á Rokkjötnum. fréttablaðið/stefán
„Það er heiður að fá að taka þátt í þessu og gaman að láta gott af sér leiða,“ segir Gunnar Örn Sigurðsson.

Hann er að smíða svokallaðan Flying V-gítar sem verður boðinn upp á tónlistarhátíðinni Rokkjötnar í Kaplakrika 5. október. Allur ágóði rennur til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna.

Aðspurður segir Gunnar Örn að gítarinn taki mið af þeim sem Addi í Sólstöfum notar á tónleikum. „Ég ætla að reyna að hafa þetta í svipuðum dúr. Hendrix spilaði á svona held ég á einhverjum tímapunkti. Fleiri voru með þetta á sínum tíma eins og Albert King blúsari.“

Gunnar Örn þarf að ljúka við gítarinn um næstu mánaðamót.

„Ég er um það bil hálfnaður og þarf aldeilis að halda rétt á spöðunum til að geta klárað hann í tæka tíð,“ segir hann og viðurkennir að gítarinn sé ekki auðveldur í smíðum. „Þetta er gítar sem er gerður úr mahóní. Hálsinn er límdur í vasa, ólíkt Fender-gíturum, og hann þarf að halla út frá endanum á búknum um tvær gráður, þannig að þetta krefst nákvæmni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.