Tónlist

Verða með pissuflöskur í rútunni

Freyr Bjarnason skrifar
Rokkararnir í Skálmöld leggja af stað í sex vikna tónleikaferðalag um Evrópu á fimmtudaginn.

Finnska hljómsveitin Finntroll verður aðalnúmerið á tónleikaferðinni en Skálmöld og hin færeyska Týr hita upp. „Við erum að teika Finntroll. Þeir voru að gefa út plötu fyrir tæplega hálfu ári og þetta er útgáfutúr fyrir þá,“ segir Snæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld. „Þeir voru á Heidenfest-túrnum sem við spiluðum á 2011 og þá varð okkur mjög vel til vina. Þeir hringdu í okkur og báðu okkur að koma með, sem var náttúrulega geðveikt.“

Finntroll og Týr verða saman í lúxusrútu með klósetti á ferðalaginu en Skálmöld verður í annarri rútu, án klósetts. „Það er búið að fara í apótekið og kaupa hlandflöskur, þannig að þetta er allt í lagi. Þegar allt klikkar þá leggst maður bara á hliðina og pissar,“ segir Snæbjörn og er fúlasta alvara.

Þetta verður fyrsta stóra tónleikaferð Skálmaldar um Evrópu í tæp tvö ár. „Þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Það verður gaman að spila fyrir nýja áhorfendur og stækka aðdáendahópinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.