Tónlist

Egill og félagar hljóðrituðu nýtt lag

Freyr Bjarnason skrifar
Lay Low, Egill Ólafsson, Högni Egilsson og Moses Hightower hljóðrituðu nýtt lag.
Lay Low, Egill Ólafsson, Högni Egilsson og Moses Hightower hljóðrituðu nýtt lag.
Stuðmaðurinn Egill Ólafsson er nýkominn úr hljóðveri ásamt Lay Low, Högna Egilssyni og Moses Hightower. Þar tóku þau upp nýtt lag sem mun heyrast á útvarpsstöðvum landsins á næstunni.

Tilefni þessa samstarfs er sextíu ára afmælistónleikar Egils í Hörpu laugardaginn 26. október en miðasala á þá hefst 5. september.

Á tónleikunum mun Moses Hightower flytja lög Egils í nýjum útsetningum. Einnig munu Högni og Lay Low koma fram og syngja lög Egils með sínu nefi og með Agli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.