Tónlist

Stuðmenn og Tjúllum og tjei

stuð á bylgjutónleikum
Stuðmenn spila á stórtónleikum Bylgjunnar á menningarnótt ásamt Björgvin Halldórs, Diktu, Valdimar og Á móti sól.
stuð á bylgjutónleikum Stuðmenn spila á stórtónleikum Bylgjunnar á menningarnótt ásamt Björgvin Halldórs, Diktu, Valdimar og Á móti sól. mynd/daníel
Stuðmenn ásamt Björgvin Halldórssyni, Diktu, Valdimar og Á móti sól spila á stórtónleikum Bylgjunnar sem verða á Ingólfstorgi á menningarnótt 24. ágúst.

Tónleikar þessir hafa fyrir margt löngu fest sig í sessi sem einn stærsti viðburður menningarnætur. Þeir hefjast stundvíslega klukkan 20.30 og lýkur rétt áður en flugeldasýningin hefst.

Tónleikarnir verða sendir út beint á Bylgjunni. Hægt er að hlusta á þá í nýlegu appi Bylgjunnar sem hlaðið hefur verið niður í um 50 þúsund snjallsíma að undanförnu.

Tjúllum og tjei, fjölskylduskemmtun Bylgjunnar, verður á Ingólfstorgi um miðjan daginn.

Bylgjan hefur farið með þáttinn Tjúllum og tjei um landið á laugardögum í sumar og ferðinni lýkur á Ingólfstorgi á menningarnótt. Þátturinn verður sendur út frá kl. 12.20 til 16 og umsjónarmenn eru Valtýr Björn Valtýsson og Jóhann K. Jóhannsson. Fram koma Sveppi og Villi, Friðrik Dór og Glaðasti hundur í heimi, Einar Mikael töframaður, Björgvin Halldórsson, Matti Matt, Sigga Beinteins og Rokkabilly-bandið, auk þess sem Dans & Jóga verður með zumba-partí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.