Tónlist

Steve Vai spilar í Silfurbergi í október

Freyr Bjarnason skrifar
Þrefaldi Grammy-verðlaunahafinn og einn mesti gítarsnillingur rokksögunnar Steve Vai heldur tónleika í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 11. október.

Hinn 53 ára Vai hefur á ferli sínum spilað með Frank Zappa, Public Image Ltd., David Lee Roth og Whitesnake, auk þess að starfrækja eigin sólóferil.

Hann er á leiðinni í tónleikaferð um Evrópu, sem hefst 29. ágúst í Belfast, til að fylgja eftir sinni áttundu hljóðversplötu og þeirri fyrstu í sjö ár, The Story of Light.

„Mér finnst meiriháttar að hann skuli vera á leiðinni. Ég er búinn að horfa á hann á Youtube og á ekki orð yfir mörgu af því sem hann gerir. Þetta er algjör töframaður og ég held að tónleikarnir verði rosalega skemmtilegir,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson, sem flytur Vai inn til landsins.

Miðasala hefst 21. ágúst á midi.is og harpa.is og í síma 5285050. Nokkrir VIP-miðar verða í boði fyrir þá sem vilja hitta gítarsnillinginn fyrir tónleika og sjá hann í hljóðprufu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.