Tónlist

Halda tónleika til heiðurs Hljómum í Hörpu

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Hinn 5. október árið 1963 spiluðu Hljómar á sínu fyrsta balli í Krossinum í Keflavík. Nú, fimmtíu árum síðar, fara fram heiðurstónleikar hljómsveitarinnar í Hörpu.
Hinn 5. október árið 1963 spiluðu Hljómar á sínu fyrsta balli í Krossinum í Keflavík. Nú, fimmtíu árum síðar, fara fram heiðurstónleikar hljómsveitarinnar í Hörpu.
„Það verður mjög gaman að heyra þetta. Hljómarnir eru spenntir,“ segir tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson en hinn 5. október verða stórtónleikar í Eldborgarsal Hörpu í tilefni þess að hálf öld er liðin frá því að hin ástæla hljómsveit Hljómar kom fram á sínu fyrsta balli í Krossinum í Keflavík.

Á tónleikunum verða flutt öll bestu lög Hljóma en fram koma meðal annarra Stefán Hilmarsson, Unnsteinn Manuel Stefánsson, Valdimar Guðmundsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir.

Gunnar útilokar þó ekki að gömlu hljómsveitarmeðlimirnir skelli sér upp á svið og rifji upp gamla takta. „Það verður allt að koma í ljós en við tökum kannski eins og eitt lag.“





Hljómsveitin var stofnuð í Keflavík árið 1963 og varð fljótt ein allra vinsælasta hljómsveit landsins.

„Hljómarnir voru langskemmtilegasta hljómsveit sem ég hef verið í, enda var tónlistin öll svo ný og framandi. Við vorum bara ungir og vitlausir strákar í Keflavík sem fengu að taka upp plötu. Ef það hefði ekki gengið upp værum við bara gleymdir og grafnir í dag,“ segir Gunnar og kveðst spenntur fyrir tónleikunum.

Hann segist þó eiga erfitt með að trúa því að hálf öld sé liðin frá fyrsta ballinu. „Fimmtíu ár? Þetta er alveg rosalegt.“

Miðasala á tónleikana er hafin á Miði.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.