Tónlist

Áhöfnin á Húna með sextán tónleika

Freyr Bjarnason skrifar
Áhöfnin á Húna ætlar að sigla í kringum landið í sumar og skemmta í hverri höfn.
Áhöfnin á Húna ætlar að sigla í kringum landið í sumar og skemmta í hverri höfn.
Húni II siglir í kringum landið í júlí og Áhöfnin ætlar að rokka í hverri höfn. Áhöfnin er hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Jónasi Sigurðssyni, Láru Rúnarsdóttur, Mugison, Ómari Guðjónssyni, Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni.

Hugmyndin um að sigla hringinn í sumar og halda tónleika í hverri höfn kviknaði í vetur í samtölum tónlistarmannanna og Jóns Þórs Þorleifssonar. Strax var ákveðið að ferðin yrði ekki farin í gróðaskyni heldur var Slysavarnarfélaginu Landsbjörg boðið að selja inn á tónleikana og safna peningum í starfsemi sína. Þannig heldur hver og ein björgunarsveit sína tónleika og rennur aðgangseyririnn beint í þeirra sjóði.

Síðar var RÚV boðin aðkoma að verkefninu og hefur verið ákveðið að fylgja túrnum eftir með sjónvarps- og útvarpsþáttagerð í allt sumar. Það eru Margrét Blöndal og Felix Bergsson sem leiða það verkefni.

Húni II er fimmtíu ára gamall eikarbátur, smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri. Margir þekkja þennan bát sem gjarnan liggur við Torfunesbryggju í miðbæ Akureyrar. Hann hefur aldrei áður gegnt hlutverki rokkbáts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.