Gagnrýni

Kraftmikið poppkornsfjör og pönkgleði

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Bíó, G.I. Joe: Retaliation

Leikstjórn: Jon M. Chu

Leikarar: Dwayne Johnson, Jonathan Pryce, Adrianne Palicki, Byung-hun Lee, Ray Stevenson.



G.I. Joe: Retaliation er heimskuleg og yfirdrifin. Persónusköpunin er arfaslök og tæknibrellurnar misgóðar. Samt hefur hún eitthvað. Heilmikið meira að segja, því hún er þrælskemmtileg framan af.

Það er erfitt að benda nákvæmlega á hvað það er sem virkar, því mjög margt í myndinni virkar alls ekki. Ég hallast þó að því að það sé gleðin. Sama gleði og illa spilandi en kraftmiklar pönksveitir búa stundum yfir.

Með þessu er ég alls ekki að segja að ávallt beri að taka viljann fyrir verkið. Dwayne Johnson er vöðvatröll en hann er ekki síður sjarmatröll. Nærvera hans gerir heilmikið fyrir myndina og Jonathan Pryce er skemmtilegur skúrkur.

Andi bandarískra hasarteiknimynda níunda áratugarins svífur yfir vötnum með tilheyrandi þjóðrembu og dramatík. Inn á milli má svo (með miklum vilja) greina ádeilu á vígbúnaðarkapphlaup stórveldanna, en G.I. Joe: Retaliation lætur mann fyrst og fremst langa til að kasta poppi og láta dólgslega.

Niðurstaða: Bjánaleg en fer langt á sjarmanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.