Tónlist

Ný hljómplata í september

Rokkararnir mæta með nýja plötu í september.
Rokkararnir mæta með nýja plötu í september.
Næsta plata bandarísku rokksveitarinnar Kings Of Leon er væntanleg í búðir í september.

Upptökum á plötunni er lokið og að sögn bassaleikarans Jared Followill hljómar hún eins og blanda af fyrstu plötunni Youth & Young Manhood og hinni þriðju, Because of the Times. „Ég hélt að við ætluðum að gera mjög þroskaða plötu en það kemur mér á óvart hversu ungæðislega hún hljómar,“ sagði Followill við NME.

Þrjú ár eru liðin síðan síðasta plata, Come Around Sundown, kom út við misjafnar undirtektir gagnrýnenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.