Tónlist

Trommar með 20 mismunandi sveitum

Freyr Bjarnason skrifar
Magnús Trygvason Eliassen spilar með um tuttugu hljómsveitum. Tónleikaröðin Magnús mánaðarins hefst á sunnudag. Mynd/GVA
Magnús Trygvason Eliassen spilar með um tuttugu hljómsveitum. Tónleikaröðin Magnús mánaðarins hefst á sunnudag. Mynd/GVA
Tónleikaröðin Magnús mánaðarins hefur göngu sína á Kex Hostel á sunnudagskvöld. Þar býður trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliassen góðum gestum í heimsókn úr þeim fjölmörgu hljómsveitum sem hann starfar með.

Aðspurður segist Magnús vera í um tuttugu hljómsveitum. Hann segist ekki vita hvort einhver sé í fleiri sveitum hér á landi en hann. „Það er alveg til fólk sem vinnur með jafnmörgum og ég. En mikið af þessu fólki sem ég vinn með er rosalega áberandi," segir hinn fjölhæfi Magnús, sem hefur haft trommuleikinn sem aðalstarf undanfarin fimm til sex ár. „Sumir segja að tónlistin sé einhvers konar köllun í lífinu og ég get alveg skrifað undir það."

Fyrir síðustu jól spilaði hann inn á plötur með Moses Hightower, Tilbury, Borko og ADHD. Á meðal annarra hljómsveita sem hann spilar með eru Sin Fang, Mr. Silla, Monotown og K-Tríó.

Magnús, sem á norskan föður, er þekktur fyrir að hafa NBA-derhúfu á höfðinu á tónleikum og býst við því að halda því áfram í Magnúsi mánaðarins. „Ég kem alltaf til dyranna eins og ég er klæddur og ég verð vafalaust með derhúfu. Ég er ekki þekktur fyrir að klæða mig neitt sérstaklega mikið upp en ég er mikill aðdáandi þessara derhúfna sem ég safna," segir kappinn sem á ellefu til tólf svoleiðis húfur á lager.

Magnús mánaðarins verður haldin einu sinni í mánuði og hefjast fyrstu tónleikarnir á sunnudag klukkan 20.30. Þá spilar Magnús með Kippi Kaninus en þeir eru að ljúka við plötu saman. „Við ætlum að nýta það að við erum í góðri æfingu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.