Tónlist

Mögnuð endurkoma hjá Sixto Rodriguez

Freyr Bjarnason skrifar
Bandaríski tónlistarmaðurinn Sixto Rodriguez hefur heldur betur slegið í gegn upp á síðkastið.nordipchotos/getty
Bandaríski tónlistarmaðurinn Sixto Rodriguez hefur heldur betur slegið í gegn upp á síðkastið.nordipchotos/getty
Bandaríski tónlistarmaðurinn Sixto Rodriguez hefur slegið í gegn eftir að heimildarmyndin Searching For Sugarman var frumsýnd á síðasta ári.

Hinn sjötugi Rodriguez hefur verið kallaður „mesta tónlistarátrúnaðargoð áttunda áratugarins sem aldrei varð frægt". Núna eftir sýningu þessarar verðlaunuðu myndar, sem var nýlega tilnefnd til Óskarsverðlaunanna, virðist sem hans tími í sviðsljósinu hafi loksins runnið upp.

Hann er bókaður á tónleikum á „heimavelli" sínum í Suður-Afríku, Ástralíu og Bandaríkjunum á næstu mánuðum og í sumar spilar hann á hátíðunum Glastonbury, Coachella og Primavera. Einnig spilar hann í hinni virtu tónleikahöll Royal Albert Hall í London. Í nóvember spilaði hann þrettán sinnum fyrir fullu húsi, þrjú þúsund manns, í Bretlandi og nýtur því greinilega mikilla vinsælda þar.

Þegar upptökustjórar sáu Rodriguez spila á bar í Detroit seint á sjöunda áratugnum héldu þeir að þeir hefðu uppgötvað hinn nýja Bob Dylan. Tónlistin var af þjóðlagaætt með sækadelískum undirtón og innihaldsríkum, andfélagslegum textum um veruleikann í Detroit.

Einhverra hluta vegna var bandarískur almenningur ekki sammála. Fyrsta plata þessa Bandaríkjamanns sem er af mexíkóskum uppruna, Cold Fact, fékk mjög góða dóma og einnig sú næsta, Coming To Reality, en sárafáir keyptu þær. Rodriguez hvarf sjónum og orðrómur var lengi uppi um að hann hefði framið sjálfsvíg uppi á sviði.

Eftir að sjóræningjaútgáfa af Cold Fact komst til Suður-Afríku varð hún ekki bara svakalega vinsæl, heldur varð hún óopinber biblía ungra mótmælenda gegn aðskilnaðarstefnunni.

En það var ekki fyrr en tveir aðdáendur Rodriguez, Stephen „Sugar" Segerman og Craig Bartholemew, komust að því að hann væri enn á lífi og ætti heima í Detroit án þess að hafa hugmynd um að litið væri á hann sem goðsögn í Suður-Afríku, að boltinn fór að rúlla.

Það eru ekki bara vel samin lög og textar Rodriguez í bland við Öskubuskusögu hans sem hafa heillað fólk eftir að myndin kom út. Hógværð hans og það hversu laus hann er við alla tilgerð hefur fallið í kramið því þessir mannkostir eru óvenjulegir í tónlistarbransanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.