Tónlist

Hinn mystíski draumaheimur

Freyr Bjarnason skrifar
Oyama gefur út sína fyrstu EP-plötu á mánudag. Mynd/Magnús Anderson og Hrefna Sigurðardóttir
Oyama gefur út sína fyrstu EP-plötu á mánudag. Mynd/Magnús Anderson og Hrefna Sigurðardóttir
Hljómsveitin Oyama gefur út sína fyrstu EP-plötu á mánudaginn. Hún nefnist I Wanna og inniheldur sex lög, þar á meðal fyrsta smáskífulagið Everything Some of the Time.

Sveitin hóf störf fyrir um ári og spilar melódískt hávaðarokk. "Í kringum páskaleytið í fyrra kom Júlía söngkona loksins inn og þá varð þetta eins og þetta er núna," segir bassaleikarinn Bergur Anderson. Meðlimirnir koma úr ýmsum hljómsveitum af höfuðborgarsvæðinu, eða Swords of Chaos, Sudden Weather Change, Útidúr, We Painted the Walls og Me, the Slumbering Napoleon.

Platan er unnin algjörlega af hljómsveitinni sjálfri. Hún er óður til svefns og tengjast öll lögin svefni á einhvern hátt. Einnig koma við sögu draugar, draumar, nostalgía, melankólía og aðrir lífsins fylgifiskar. "Hinn mystíski draumaheimur svefnsins er mjög áhugaverður út af fyrir sig. Hvað gerist á meðan og hvaða leyndarmál koma upp á yfirborðið án þess að maður viti af því? Hið ómeðvitaða og hið frjálsa ræður ríkjum," segir Bergur.

Útgáfutónleikar verða haldnir á Faktorý föstudaginn 25. janúar. Einnig koma fram Tilbury og Samaris. Tónleikarnir hefjast upp úr klukkan 22.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.