Tónlist

Árstíðir hlaut evrópsk verðlaun

verðlaunuð Hljómsveitin Árstíðir hefur hlotið tónlistarverðlaunin Eiserner-Eversteiner.
verðlaunuð Hljómsveitin Árstíðir hefur hlotið tónlistarverðlaunin Eiserner-Eversteiner.
Árstíðir hefur hlotið evrópsku tónlistarverðlaunin Eiserner-Eversteiner. Þau eru veitt framúrskarandi evrópskum hljómsveitum í Þýskalandi á hverju ári.

„Þetta mun opna Þýskalandsmarkaðinn mikið fyrir okkur. Umboðsmaðurinn okkar er byrjaður að plana tvö tónleikaferðalög um Þýskaland næsta sumar,“ segir Ragnar Ólafsson úr Árstíðum. Sveitinni hefur einnig verið boðið á hátíðina Rudolstadt í júlí, sem er stærsta þjóðlagatónlistarhátíð Þýskalands.

Fjöldi hljómsveita sendi inn umsóknir vegna tónlistarverðlaunanna Eiserner-Eversteiner. Átta hljómsveitir voru tilnefndar úr þeim hópi og þær tóku þátt í hljómsveitakeppninni Folkherbst. Hún er haldin ár hvert í þýsku borginni Plauer. Þar er bæði keppt um áheyrendaverðlaun og viðurkenningu dómnefndar atvinnumanna, og Árstíðir hlaut viðurkenningu dómnefndarinnar.

Hljómsveitin er á leiðinni til Þýskalands til þess að taka á móti verðlaununum, sem hljóða upp á um hálfa milljón króna. Af því tilefni spilar hún á hátíðartónleikum í tónleikahöllinni Malzhaus í Plauen 26. janúar.

Fleira er fram undan hjá Árstíðum, því hljómsveitin hitar upp fyrir sænsku rokkarana í Pain of Salvation á þriggja vikna tónleikaferðalagi, þar sem hljómsveitirnar munu flakka um fjórtán lönd. Ragnar Sólberg er meðlimur sænsku hljómsveitarinnar og kynnti söngvara hennar fyrir Árstíðum á sínum tíma.

Síðasta plata Árstíða, Svefns og vöku skil, hefur verið gefin út í Þýskalandi og fengið góða dóma.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.