Tónlist

Justin Timberlake rýkur upp vinsældarlistana

Justin Timberlake gaf á sunnudag út sitt fyrsta nýja lag í sjö ár. Þrátt fyrir einungis tvo daga í sölu er það komið á toppinn á sölulistum iTunes út um allan heim og er greinilegt að mikill áhugi er á nýju efni frá kappanum. Lagið heitir Suit & Tie og var sett á vefsíðu hans á sunnudaginn ásamt opnu bréfi sem hann skrifaði til aðdáenda sinna. Þar tilkynnti popparinn að ný plata, The 20/20 Experience, væri væntanleg á þessu ári. "Í júní í fyrra byrjaði ég í rólegheitunum að vinna við mitt næsta verkefni sem snýst um það sem ég elska, tónlist,“ skrifaði Timberlake, sem hefur undanfarin ár einbeitt sér að kvikmyndaleik. Rapparinn Jay-Z kemur við sögu í nýja laginu og upptökustjóri var Timbaland.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.