Tónlist

Með tvo umboðsmenn í London

spilar í viðey Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðey í kvöld.
fréttablaðið/valli
spilar í viðey Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðey í kvöld. fréttablaðið/valli
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðeyjarstofu í Viðey í kvöld. Þar kynnir hún sína fjórðu plötu, Moment, sem kom út fyrir jól.

„Mig langaði að gera þetta aðeins öðruvísi og ætlaði fyrst að halda tónleikana í stofu. En að ná fólki út á eyju er eitthvað svo framandi,“ segir Lára. Hún ákvað að halda tónleikana núna, bæði vegna þess að mjög mikið framboð var af tónleikum fyrir jólin og vegna þess að hún var í prófum í desember. Hún er á fyrsta ári í meistaranámi sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands.

Síðasta plata Láru, Surprise, kom út 2009 og í kjölfarið vaknaði áhugi fyrir henni erlendis. Hún lék á tónleikum fyrir tímaritið Q í London ásamt Amy MacDonald auk þess að koma fram á mörgum tónlistarhátíðum víðs vegar um Evrópu, þar á meðal SPOT, Eurosonic og The Great Escape.

Lára er með tvo umboðsmenn í London, Nick Knowles og hinn þrautreynda Chris Morrison sem hefur unnið fyrir Blur og Gorillaz. Þeir eru að vinna í að koma henni á framfæri í Evrópu en þeir eru líka með hljómsveitina Sykur og Sóley á sínum snærum. „Þetta gæti tekið tíu ár þess vegna,“ segir hún og brosir.

Fleira er að frétta af Láru því hún er á leiðinni í brúðkaupsferð til Taílands í febrúar. Hún gifti sig árið 2010 og á fjögurra ára dóttur með eiginmanni sínum Arnari Þór Gíslasyni. „Við ætlum að vera í tvær vikur og kafa og klifra,“ segir hún og hlakkar mikið til.-fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.